Grímseyingur í hnetuskel
Í dag keyrði ég frá ömmu og heim til mín. Oftast er þetta viðburðasnauð ferð en ekki í dag. Í dag ákvað maður, sem lærði á bíl í Grímsey, að stoppa á öfugum vegarhelmingi í Hólmgarðinum akkurat á gatnamótum. Þar sem ég er ekki snillingur við stýrið stoppaði ég róleg fyrir framan manninn og bað eftir því að hann færði sig. En neiiiii....hann var að tala við vinkonu sína og mátti ekki vera að því. Vinkona hans var rosalega hneyksluð á því að ég vildi að maðurinn færði sér og sagði mér kurteislega að drullast á öfugan vegarhelming og keyra fyrir aftan manninn. Það er of flókið fyrir mig þannig að mamma hrópaði á fólkið að ég væri í æfingaakstri og hvort maðurinn gæti ekki vinsamlega fært sig í burtu svo ég kæmist.
Maðurinn gnísti tönnum og frussaði blóði á framrúðuna sína, setti bílinn í gang og keyrði hann upp ad húddinu á mínum bíl. ,,FOKK hann ætlar bara að klessa á mig, VILJANDI!!" hugsaði ég í gæsalöppum. Ég fékk gubb upp í háls og óskaði þess að það væru ekki geðsjúklingar á Íslandi.
,,Á BÍLLINN EKKI AÐ VERA MERKTUR EF HÚN ER AÐ LÆRA!???????, " öskraði maðurinn úr bílnum sínum á mömmu og benti reiður á húddið okkar. Mamma benti aftan á bílinn okkar og maðurinn keyrði í fússi í burtu. Vinkonan stóð fyrir framan okkur með hendur krosslagður og formælti okkur fyrir dónaskap og frekju. Þegar ég hafði náð meðvitund aftur keyrði ég í fyrsta gír í burtu með hjartað í hálsinum. Það sem ég lærði af þessari ferð er að ég ætla ekki aftur til Grímseyjar.

3 Comments:
Þegiðu. Fósturfaðir fósturömmusystur minnar var Grímseyingur.
Rosalega keyrirdu asnalega leid heim til thin fra ommu thinni, Grimsey er ekki a leidinni ef thu ferd stystu leid.
Þessi tengiliður er ekki að virka hjá þér Edda mín þessi drengstauli er ekkert búin að gera í sambandi við linkana.
Skrifa ummæli
<< Home