28.10.05

Saklaus sundferd sem breyttist i martrod

Sagan byrjar s.s. a thvi ad eg for i sund. Hjoladi i rolegheitunum i gegnum allan baeinn og brosti til theirra sem heilsudu mer. Eg gleymi alltaf ad segja hae, fatta thad svo thegar thad er ordid of seint. Non fa niente. Thar sem eg hjola um a frekar dyru hjoli spurdi eg konuna i afgreidslunni hvort eg maetti ekki geyma hjolid mitt inni. Ekkert mal. Hjolid komid inn tha byrjar konan ad aepa. "Nei nei Edda (thad vita allir hvad eg heiti en eg rett man hvad Anna og Nando heita) ekki INNI!" Tha matti eg geyma hjolid fyrir utan gluggann. Thad hefur gleymst ad segja mer hvenaer uti breyttist i inni. Allavega thau voru rosalega vingjarnleg og budust til ad hafa gaetur a hjolinu minu. Daginn adur hafdi eg pantad tima i sundi. Thad er nefnilega allt svo skipulagt herna. Ja eg atti pantadan tima thannig ad konan klippti a kortid mitt. Svo rolti eg inn klefann eda volundarhus ollu ad heldur, thvi manneskjan sem hannadi thetta svaedi hefur orugglega gert thad med bundid fyrir augun. Audvitad kom eg ekki med las. Hver fer med las i sund? Tok bara sjensinn a thvi ad folk hefdi ekki ahuga a fotum utlendingsins. Ad lokum fann eg sturturnar. En thar var engin hilla fyrir handklaedid mitt bara snagar fyrir sloppana. Thegar eg aetladi ad kveikja a sturtunni kom ekkert vatn. Eg profadi thrjar sturtur en ekkert vatn. YES. Thetta er aedislegt. Ein mamman sem var i fotum ad thvo barninu sinu spurdi mig hvort eg hefdi ekki kort. KORT? Til hvers? Tha tharf ad hafa kort til ad geta notad sturturnar. Thessi yndislega kona leyfdi mer ad nota sturtu barnsins og sidan rolti eg ut i laug. Laugin var trodfull af krokkum ad aefa. Fann svo einn sundlaugarvordinn og spurdi hvar eg maetti synda. "A fimmtu braut. Number five." Hoppadi oni a braut fimm og heyrdi manninn oskra a eftir mer. Tha er vist skylda ad hafa sundhettu ollum stundum. Sundhetta? Thad er eitthvad sem amma Una notadi. "Eg a ekki sundhettu, " sagdi eg og brosti eins og faviti ofan i lauginni. Sersveitin var send af stad til ad finna sundhettu handa mer. Loksins hafdist thad og eg synti, med sundhettuna, a braut numer fimm i dagodan tima. Thegar eg var ordin threytt for eg upp ur og inn i klefa. Shit, kortid fyrir sturturnar. Einmitt i theirri andra rambadi ein mamman inn i sturtuklefann. Greyid, hun for i klessu thvi eg var bara med handklaedi utan um mig. "Fyrirgefdu, fyrirgefdu!!" "Thetta er allt i lagi ertu nokkud til i ad redda fyrir mig korti i sturturnar?" Thad reddadist en audvitad hafdi eg gleymt sjampoi. Alltaf batnar thad! Svo gat eg ekki opnad skapinn minn. Eftir fimm minutur tokst thad. En tha hofdu augun dottid ur tveimur stulkum i klefanum og handklaedid mitt nokkrum sinnum. Utlendingar eru vist sjaldgaefir herna. Jaeja. Nu thurfti eg ad thurrka harid. Audvitad tharf kort i harthurrkurnar. Nei Edda, gleymdirdu burstanum lika? Med halfblautt og ogreitt har hljop eg ut ur sundhollinni og hjoladi heim.

Thegar Anna kom heim um kvoldid utskyrdi hun fyrir mer sundlaugareglur a Italiu.
Thaer eru einhvern veginn svona:

1) Allir thurfa ad fara i laeknisskodun adur en their mega nota laugina
2) Konur mega bara vera i sundbolum, alls ekki bikinium
3) Allir thurfa ad vera med sloppa
4) Allir thurfa ad vera med sundgleraugu
5) Allir thurfa ad vera med sundhettur
6) Allir thurfa ad vera med tofflur, berfaett folk fer a svartan lista (eg er komin a hann)

...svo tharf natturulega kort til ad nota sturtur og harthurrkur og las til ad laesa skapum og panta tima ef madur er med frjalst sundkort (sem adeins 16 ara og eldri geta fengid)


Hvernig aetli naesta sundferd verdi?

1 Comments:

Blogger Klara said...

Hahahahaha, þömms öpp fyrir bjúrókrötunum

11:21 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home