30.9.07

Rincoglionita


Er þetta langafi minn?

Fyndið hvað manni tekst alltaf að gera allt annað en það sem maður á að vera að gera.
Núna á ég t.d. að vera að mála 6 olímyndir sem ég að skila á morgun - eða byrja á verkefni í grafískri hönnun, sem ég á líka að skila á morgun.
Í staðinn ákvað ég að elda mér kvöldmat tvisvar sinnum (letipasta - fyrir þá sem ekki vita hvað það er skal ég útskýra: letipasta (fyrir jafn marga og þú nennir að elda fyrir) - labbaðu að eldavélinni og gríptu í leiðinni allt sem þú sérð að gæti hugsanlega mögulega verið gott með (þetta má ekki taka lengur en 15 sekundur) - þú sýður pasta og setur allt gumsið í pönnu við hliðiná (fyrir ofurlata er hægt að henda öllu draslinu ofan í pottinn með pastanu en það verður ekki jafn gott) um daginn samanstóð letipastað af grænum baunum, hvítlauk, ólífuolíu, basilíkum og perusafa (vatn var ekki við höndina og gumsið var að brenna) - það var skárra en maður hefði haldið - en ekki jafn gott og ég vonaði.), leitað að mynd til að mála í 2 tíma og smakka sangríuna sem ég gerði í einhverju rugli í nótt.

Komst líka að því að ég er óskipulagðari og gleymnari en ég hafði gert ráð fyrir. Um daginn þurfti ég að hlaupa þrisvar sinnum heim úr tíma því ég hafði gleymt einhverju. Það gerði þó ekki mikið til því ég er á Ítalíu og fólkið er í rólegri kantinum. Allavega hvað þetta varðar. Svo hjálpar líka til að ég er ekki bandarísk - sem er alltaf gott.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Mmm, perusafi og grafísk honnun. Ég held tví fram ad líf titt og letipasata einkennist af bóhemískum glamúr, og hananú.

4:10 e.h.  
Blogger Unknown said...

Langafi þinn? Nei mamma segir að þetta sé minn langafi :D

5:51 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvar náðir þú í þessa mynd? Ég man ekki eftir að hafa séð hana áður en ég sá hann oft við þessa iðju. Pastað er freystandi. Bauð Önnu Maríu að koma í pizzu einhvern föstudaginn...elda varla eftir að þú fórst. mamma

6:21 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home