21.1.05

Byrjaði í nýrri vinnu í dag í bakaríi. Lærði allt um skonsur, súkkulaðimuffins, citron tærter, "Brúðkaupskökuna" og hvernig maður á ekki að lykta af hlutum fyrir (framan) kúnnanna. Skemmtileg saga sem einungis er hægt að segja lifandi. Annars þori ég ekki að tjá mig meira um vinnuna.

Begga söng í gær í Söngvakeppninni. 'Twas brilliant! Amma var ánægð með að Queen hefði orðið fyrir valinu. Ég hló mest að Kára að syngja All by myself og næst á eftir því kom atriðið með stelpunum með uppblásnu dúkkuna. Það sem toppaði kvöldið var svo slátrið heima hjá ömmu eftir keppni. Amma fær hæstu einkunn.

Naaaaaaaaaan-brauð.


2 Comments:

Blogger Kamma said...

Fyndid ad thu getir ekki sagt soguna dain :)

6:17 f.h.  
Blogger Stofnfruman said...

Það yrði áreiðanlega gott með sultu...

4:45 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home