26.5.05

Ekki um Sean Penn

Frá 08:30 - 17:00 afgreiddi ég 6 manneskjur. Það er tveimur meira en í gær. Þar sem ég þurfti ekki að afgreiða neinn þreif ég eldhúsinnréttinguna, stóra ísskápinn, greiparnar, sópaði gólfið hundrað sinnum, las 60 blaðsíður í Sívagó læknir, lagði á minnið fullt af óþarfa upplýsingum um konuna sem vinnur í afgreiðslunni og húsvörðinn og söng fyrir sjálfa mig.

Kannski koma fleiri á morgun.

2 Comments:

Blogger Stofnfruman said...

Það komu ekki fleiri í dag.

5:50 e.h.  
Blogger Stofnfruman said...

Það komu enn færri í dag....

3:34 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home