18.5.05

Við fórum..

...í bíó um daginn á The Interpreter. Eiginlega bara af því að Sean Penn leikur í henni. Myndin var góð en ég fór næstum því að gráta vegna þess að þau kysstust aldrei. Hvað meinar leikstjórinn eiginlega með þessu? Það er ekki réttlátt að hafa Sean Penn í mynd án þess að láta hann kyssa einhverja konu. Bráðum ætla ég að horfa á 21 grams. Eiginlega bara af því að Sean Penn OG Benicio del Toro leika í henni. Ef þeir tveir og Adrian Brody leika einhvern tíma í mynd saman mun ég deyja hamingjusöm. Það þarf ekki meira....

....nema kannski smá mat.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hæ ég sit á læknastofu fékk að fara í tölvuna meðan læknirinn skoðaði útkomuna.
Ég er fyrst í engu nema að kommenta.

9:28 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home