Native American Flutes and Cooking
Það eru Danir í heimsókn. Sigurlaug sagði mér að hætta að glotta svona.
Ég er hætt að vera kaldhæðin. Í alvöru. Genið er horfið. Ég er að hugsa um að gerast væmin í staðinn. Væmið fólk talar bara um væmna hluti eins og andlit og dýr og tilfinningar og ost.
Prófun:
Í dag var yndislegur dagur. Ég vaknaði og sá sólina rísa. Það var himneskt. Margt skemmtilegt gerðist í skólanum. Danir frá Danmörku voru með okkur í tíma og þeir voru alveg frábærir. Ótrúlega skemmtilegt fólk, Danir. Mig langaði bara til að knúsa þá alla! Haha! Alveg eins og kærleiksbjörn :) Skóladagurinn leið á örskömmum tíma. Eftir skóla fór ég með mömmu að kaupa rósir. Rosalega voru þær fallegar. Ég sá fullt af augum á leiðinni sem voru yndisleg og falleg á litin.
Æh, lífið er bara svo yndislegt. Það er matur í kvöldmatinn og allt!
Núna ætla ég að læra eitthvað rosalega fallegt og krúttulegt.
Kannski hef ég ranghugmyndir um væmni.

6 Comments:
Nei sko, ég fann bloggið þitt. Gjögt gaman.
-Hildur Ásgeirsdóttir
Sko Edda, þetta var ekki væmni. Þetta var afskaplega köld hæðni.
Svo tek ég væmnissneiðinni mjög persónulega þar sem tala ekki um annað en hundana mína sjö og ost þessa dagana. Ég tel mig samt ekki væmna. Bara...svæmna.
Ok Edda, thu og vaemni, hugsanlega ekki alveg ad gera sig; einstaka setning hefdi getad verid skrifud af mommu minni (og tha hefurdu masterad vaemni) en margt var eins og ur sapuoperu (og tha hefurdu eytt of miklum tima fyrir framan sjonvarpid ad undanfornu). Nidurstada min i thessu mali (as if you care) er thar af leidandi ad thu ert ekki vaemin. Thu ert fyndin og thu verdur bara ad saetta thig vid thad!
þú virðist því hafa fundið genið aftur
Guði sé lof að þetta var illa kaldhæðið ég mundi ekki geta skilið neitt annað hjá þér
Þetta var hin alræmda Þóra þari múhahahaha
Skrifa ummæli
<< Home