Röff gella
Æsispennandi dagur!
Kepptum í Sólbjarti í dag. Töpuðum því miður á móti sýrðasta fólki sem ég hef komist í kynni við. Munurinn var þó aðeins 34 stig sem verður að teljast nokkuð gott miðað við hálfamatörliðið okkar.
Nú hef ég enga ástæðu til að læra að standa á höndum.
En það allra mikilvægasta er að ég fékk himneska samloka a la mamma í nesti: Ristað brauð, sinnepssósa, kál, gúrka, tómatar, kjúklingur og beikon! Ég slefaði næstum því út úr mér eins og maðurinn sem afgreiðir í kjötborðinu í Nóatúni, nema hans er ekki slef heldur misheppnuð ræktun á skeggi.
Brátt mun ilmurinn af brownies umlykja íbúðina. Annars er ég nýbúin að borða. En hvenær hefur það stoppað mig hingað til?

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home