26.1.05

Fyrir alla þá sem ekki hafa hitt mig frá því ég byrjaði að vinna

Í vinnunni:

konan: áttu eitthvað með rjóma?
ég: uuuuu....þetta er örugglega með rjóma
konan: nei þetta er með vanillukremi
ég: wtf?!..uuuu það er pottþétt rjómi í brúðkaupskökunni, það er (sko) uppáhaldskakan mín, vá hún er svo góð, með svona hindberja sósu ofaná og vanillurjóma inní, nammi
konan: á ég að láta freistast?
ég: *kinka kolli*
konan: já ég ætla að fá eina, heyrðu hvað er þetta brauð þarna í horninu?
ég: þetta er kanslarabrauð, það er uppáhaldsbrauðið mitt, rosalega gott, dökkt og mjög gott (fjölbreyttur orðaforði)
konan: já :) ég fæ bara eitt þannig líka, hvað er þetta þarna?
ég: þetta er svona softkjærna rúgbrauð, það er sko uppáhalds......NEI DJÓK!!! HAHAHAHA
konan: hahahahahha :D
aðrir: : l


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home