2.2.05

Lokaðu augunum, slökktu á ljósunum og gefðu í!

Í gær fékk ég hor. Í dag fór ég ekki í skólann. Á morgun er latínupróf. Það yrði e.t.v. eðlilegt að fara í kerfi núna en þar sem ég er áhyggjulaus útaf öllu nema Gettu betur og stundvísi er ég nokkuð róleg. Nema ég sé í vímu út af engiferinu sem ég hef innbyrt í grammatali.

Orð dagsins er ekki úr Biblíunni heldur úr latínu. Fama, sem ég man ekki hvað þýðir í augnablikinu en er mikilvægt og stýrir acc. c. inf. (uppáhalds acc. mínum).

2 Comments:

Blogger Sigurlaug Elín said...

Hmm. Ég fékk dularfullan sjúkdóm og reyndi að vinna ötullega að því að dreifa honum um skólann, eða þar til mamma komst að því og kyrrsetti mig undir sænginni. Þannig að ég missti af öllum æsispennandi latínuprófunum og sögufyrirlestrunum...

12:30 f.h.  
Blogger bergþóra said...

minn er acc. temporis.
af því að ég get greint hann frá abl. temporis.
var að læra það.
já.

12:56 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home