For I am the queen of procrastination

það er terpentína í pestókrukkunni minni. ég fékk mér þrjá kvöldverði í kvöld. hárið mitt hefur haldist ógreitt í 4 vikur. þvottavélin bilaði og ég fór í kjól og hælaskóm í vinnuna. eftir mánuð koma begga, brynja og sigrún í heimsókn - ég hlakka svo til að ég gæti farið að gráta. bráðum fer pastamagn að mælast í blóðinu mínu. greindist með ótrúlega parmesanfíkn í síðustu viku - kílóin renna ljúflega niður. í næstu viku fer ég niður eftir - búin að skipuleggja hvað skal eta í hvert mál. er ekki hægt að vinna við það að smakka mat? eg myndi m.a.s. gera það í sjálfboðavinnu. anybody? no? dust.

3 Comments:
hahhaha........jú þú getur......unnið við það góða.....matargagnrýnandi
Þú ert yndisleg :)
kv. Imba
vei! vei! vei! Flórens eftir 3 stuttar vikur!!!!!
Skrifa ummæli
<< Home