17.12.07

öpdeit

- át 8 appelsínur sem höfðu dulbúið sig sem mandarínur
- fór til mílanó og hitti þar fyrir fólk
- sá snjó - gaman því það var jólalegt leiðinlegt því lestin "bilaði" vegna hans og við þurftum að snúa við - þolinmæði þolinmæði - ITALIAAAAA FRATELLLLLIIIIII)
- föndraði listaverk sem mun seint verða selt en snemma gefið
- fékk að búa til kokteil í vinnunni (!)
- drakk risamojito úr karöflu
- horfði á hægrisinnaða ítali mótmæla vinstri"stjórn" landsins (gæsahúð)
- borðaði pizzu þrisvar á einum sólarhring
- fór aftur á uffizi og var þar í 4 klst. gæti næstum því sagt eitthvað um einhverja styttuna eða málverk (gamalt?, fallegt?)
- lærði að segja skjaldkirtill á sænsku
- gleymdi því hvernig maður segir skjaldkirtill á sænsku
- lærði að segja flugvél sem lendir á vatni (íslenska?) á ítölsku og notaði það sama orð í setningu sem annað fólk skildi (sbr. fasteignamarkaður í denn)
- fór í h og m og komst lifandi út aftur

myndir koma á eftir mér

2 Comments:

Blogger Unknown said...

sjóflugvél?

10:03 e.h.  
Blogger edda mac said...

nákvæmlega.

12:53 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home