Speki - alltaf

Það er merkilegt að þessi yfirstrikunarpenni skuli enn virka eftir 4 ár í MR. Sennilega vildi ég ekki eyðileggja útlit bókanna eða glósanna. Útlit umfram innihald. Alltaf.
Á morgun er hugtakapróf í myndlist. Hugtök þarf maður að kunna til að geta átt í flóknum samræðum við fólk sem gerir sig flókið. (Nemað ég sé að misskilja þetta eitthvað.) Einfalt er betra. Alltaf.
Ekki fylgja uppskriftinni. Aldrei.

4 Comments:
Við getum átt í hugtakasamræðum þegar þú kemur heim. Við þurfum aldrei að ræða um neytt annað framar!!! ALDREI!
Hæ Edda. Hér er ég, Edda, að skrifa á síðuna þína... af hverju? Af því að ég les hana og vildi láta þig vita. Ég er hér! Gaman. Hafðu það gott þarna á Ítalíu. Ég er að fara til Svíþjóðar, sem þú vissir kannski ef þú lest mitt blogg! Hoho... bara í þrjá daga, samt.
Ooo... þessa dagana læri ég bara blótsyrði á spænsku. Líf þitt virkar ólíkt meira spennandi... sérstaklega ef litið er til þess að ég var að enda við að borða gamla gulrót...
ég hef aldrei átt penna nógu lengi til að geta íhugað hve lengi hann entist. ég vildi óska að ég ætti þá- alltaf.
Skrifa ummæli
<< Home