15.8.05

Hugmyndin um að nota töfrasprotann á túnfiskinn hljómar alltaf betur og betur

Undanfarna daga hef ég talað svo mikið við pöntunarkonuna hjá Gæðafæði að hún lét teikna broskall á sendinguna mína. Held það. Held því allavega fram.

Í morgun fór ég til tannlæknis.

"Ef þú borðar ekki mikið af sætindum og notar tannþráð verður þetta (einhver hugsanleg hola á glerungnum) ekkert vandamál."

Eftir þetta fór ég aftur í vinnuna og borðaði muffins, drakk appelsínusvala, fékk mér of mikið af deigi og smakkaði til frekar vont túnfiskssalat. Maður hefði haldið að ég yrði betri í að búa til mat en nei.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home