Japanskir perrar
Nú er ég komin með fjóra plástra á þrjá fingur og vona að þeim fjölgi ekki. Hvorki plástrunum né fingrunum. Það eru ekki bara hnífar og skurðavélar sem meiða fólk. Það eru líka oddhvöss brauð. Brauð dauðans.
Orðlaus kemur til mín í hverjum mánuði og veldur alltaf vonbrigðum. Eru prófarkalesarar útdauðir? Þegar Jay Leno fer "walking" verð ég alltaf undrandi á því hversu heimskir Ameríkanar geta verið. Orðlaus spyr fólk líka spurninga og í fæstum tilvikum getur fólk svarað. „Hver er stærsta eyja í heimi? Vestmannaeyjar.....nei djók ég veit ekki.“ Nei þú veist greinilega ekki.
Af hverju held ég áfram að lesa þetta blað??
Í dag fór ég í messu í fyrsta skipti í Hallgrímskirkju. Síðast fór ég í messu 1. apríl 2001 þegar ég fermdist. Það kom reyndar á óvart hversu margir voru í kirkjunni, uppundir 100 manns. Reyndar voru frekar margir túristar sem þurfa greinilega að fara á kurteisisnámskeið. Maður tekur ekki 100 myndir inni í kirkju á meðan á athöfn stendur. ARGH! Ég vil líka benda öllum foreldrum, núverandi og tilvonandi, að taka börnin sín ekki með í kirkju ef gleymst hefur að ala þau upp. Annars var messan ágæt. Róandi og svoleiðis. Næst tek ég bara með eyrnatappa.

3 Comments:
Ég þarf einnig að glíma reglulega við brauð dauðans, pylsubrauð. Þau hafa enn ekki skorið mig en þau hafa þó komið því í kring að ég var lamin með kassa í hausinn.
Vona að fingrunum fjölgi ekki um of hjá þér.
þessi brauð eru vinir mínir. ég vil ekki að þú talir svona um vini mína. þessi brauð fæddu mig og klæddu. frabída.
Innst inni elska eg thessi braud Begga.
Nei Imba, það reyndist á endanum ekki vera málið...
Skrifa ummæli
<< Home