Tíminn er svo lengi að líða. Það er ekkert sem ég á eftir að gera áður en ég fer út. Bara pakka. Það tekur í mesta lagi hálftíma. Mig langar út núna! Ég hlakka svo til að borða, hitta fjölskylduna, þurfa ekki að vera í úlpu í 10 mánuði, tala annað tungumál, ferðast um í lest, taka myndir, mála myndir, hlaupa ótrúlega hratt (eitthvað sem ekki er hægt á Íslandi), synda í sjónum í æðislega sundbolnum mínum, sigla, hjóla í pilsi og reykja ótrúlega mikið hass. Ég get bara ekki beðið.

8 Comments:
mig hefur líka alltaf langað að hjóla í pilsi en ég á ekkert hjól. ég á heldur ekkert hass. því miður. ég fékk glaða kitltilfinningu í magann þegar ég sá titilinn á blogginu. jájá. farðu bara.
haha, reykja alveg ótrúlega mikið hass.
Í Portúgal í útskriftarferðinni voru á hverju götuhorni skuggalegir menn sem buðu manni gullhálsmen sem þeir höfðu rænt af fínu frúnni við hliðina á. Svo þegar maður sagði nei buðu þeir manni bara hass, eins og bændur bjóða hver öðrum í nefið.
Og líka hugtak. Var það ekki einhvern veginn svona?
Hahahahhahhawhahhahahahhahahhaha, það er ekki að ástæðulausu sem þú færð að þekkja mig... hahahahaha.
Btw, vantar þig hass? Ég get reddað þér. Það settist "áhugavert" fólk á borðið mitt í dag þegar ég var að reyna að lesa Njálu. Ég heyrði "accidentally" samtalið þeirra.
Stelpan var mjög gáfuð.
Henni fannst mikill bömmer að strákurinn fékk eiturlyfin sín ekki aftur frá löggunni þegar hann var böstaður á Menningarnótt.
"Leiðinlegt að vera tekinn af löggunni en mér finnst nú leiðinlegra að fá ekki stöffið aftur". Þegar ég heyri samtöl á borð við þetta þá hugsa ég ósjálfrátt "ég vildi óska þess að ég væri kúl. Mig langar að þekkja þessa manneskju".... allavega, point of the story = Vantar þig hass?
hæhæ heyrðu ég er að fara með þér út til ítalíu og ætlaði að láta þig vita að við vorum að spá í að fara á kaffihús eftir ferðafundinn á fimmtudag, bara svona til að hrista hópinn betur saman og stelpurnar frá akureyri ætla líka að vera með, þú skrifar bara komment inná síðuna ef þú ert geim... Ragnheiður
hæhæ aftur en stelpurnar sem komu heim í sumar voru að spá í hvort við gætum ekki hitt þær á sunnudagskvöldið... láttu vita ef þú kemst :)
Nú styttist í þetta... styttist og styttist... klukkan 7 er kvöldmatur! :) See you then!
Góða ferð, aftur!
Ég varð mjög fúl þegar þú komst í skólann um daginn og ég var svo niðursokkin í að læra eða eitthvað sem ég man ekki að ég missti af þegar þú fórst út úr stofunni og gat ekki óskað þér góðrar ferðar.
En svo hitti ég þig bara í Lækjargötunni í morgun og gat kvatt þig þá! Jasveimérþá.
Bæbæ.
Skrifa ummæli
<< Home